I've been here before a few times

ihjoggurr

13.06.2007 09:12:13 / liney

misses

Það er sárt að sakna einhvers, lífið heldur áfram... til hvers?

lalala

ojjj söknuður er bara ein versta tilfinning sem finnst, manni líður svo óþægilega og finnst alltaf eitthvað vanta... eins og er þá vantar mig hinn handlegginn!!!

Thanks.

(p.s ég á afmæli í dag 8))


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.05.2007 08:23:13 / liney

<3

Vildi bara láta ykkur  vita að í dag er ég búin að vera mamma í 1 ár!!!!

JÁ LITLI PRINSINN MINN SEM FÆDDIST Í GÆR ER ORÐINN 1 ÁRS!!!!!!!!!!!!

...mömmu sinnar fallegasti :*:*:*:*


» 7 hafa sagt sína skoðun

15.03.2007 21:49:42 / liney

molar

Jæja þá er maður fluttur og að sjálfsögðu löngu búinn að koma sér fyrir , það tók nú ekki nema um sólahring hehe ;) svona er þegar spenningur tekur völdin þá er allt sett á fullt :) okkur líður alveg frábærlega hérna saman mæðginunum, gætum ekki haft það betra :) erum búin að fá alveg fullt fullt af gestum, það er alltaf opið hús fyrir ykkur elskurnar, heitt á könnunni og læti hehe ;) ananrs vil ég bara þakka öllum þeim sem komu að flutningnum með einhverjum hætti bara ÆÐISLEGA vel fyrir allt saman, þið eruð öll gimsteinar og ég elska ykkur mest :* 

En útí annað... ég er byrjuð að vinna á Subway allan daginn, þannig Róbó er hjá dagmömmunni... mikið svaaaakalega eru það mikil viðbrigði að byrja að vinna aftur eftir árs pásu! Maður er alveg búinn á því þegar heim er komið.... nenni engu :P við mæðginin rotuðumst nú klukkan 18 eitt kvöldið í síðustu viku! Og vöknuðum spræk hálf 6 morguninn eftir ;) en þetta er allt að venjast núna :) afskaplega fínt að vinna á Subway, katrín er líka workbuddyinn minn ;)

  Ahhh mikið afskaplega er ljúft að hafa netið.... 

Hélt smá girlyteiti síðasta laugardag... eða okei... það byrjaði sem stelpudæmi... en það breyttist eitthvað þegar líða tók á kvöldið hehe ;) alveg hvað áfengi getur gert mann kolruglaðan! =) Leiðin lá á mörkina eins og vanalega... komin með markarleiða á háu stigi... en þetta var nú í flesta staði ótrúlega skemmtilegt kvöld, flestir fullir og vitlausir, en líka sumir edrú og gáfaðir :) en við skulum ekkert fara nánar útí atburði kvöldsins svona fyrir almenningi ;) hihihi – skelli nú samt kanski myndum frá kvöldinu inn við tækifæri... ef þið eruð góð. 

Heyrðu ég fékk nú helvíti skemmtilegan viðskiptavin á subway í gær, hann heitir hjörtur, kenndur við Willa.... ólafsvíkingur í húð og hár, þekktumst hér í den, en hann spurði mig þeirri fráleitu spurningu hvenar ég ætlaði til ólafsvíkur... hmmmm.... ??! Hvaaaað hef ég að gera í ólafsvík, hef svona 3-4 sinnum farið þangað... ALLTAF.. já ALLTAF undir áhrifum áfengis, þannig ég á voða fátt vantalað við þann bæ, en alltaf gaman að rekast á svona kunningja ;) 

Hey kann einhver að installa eða downloda eða hvað sem maður gerir ... þarna Skype dæminu... ? Ef einhver er það klár, þá má sá hinn sami endilega vera í bandi við mig =)  

Annars held ég nú að það sé ekkert fleira ... sit hér heima hjá mér í sófanum með tölvuna í fanginu, osta á borðum og friends í imbanum, gerist það betra?

En ég bara bið að heilsa ykkur, hafið það gott elskurnar, kisskiss knús knús (hahahaha, þegar ég skrifaði kisskissknúsknús þá flaug uppí hausinn á mér leikritið “Slappaðu af” sem verzló gerði frægt á sínum tíma ... “KJÖTBOLLA????????” HAHAHA! Ég dey....” 

Out. Líney húsmóðir með meiru


» 15 hafa sagt sína skoðun

28.02.2007 23:53:19 / liney

í alvörunni allt að gerast...

Já gott fólk þetta er alveg ótrúlegt, fyrir mánuði síðan átti ég mér óskir og drauma um að flytja út og standa algjörlega á eigin fótum og hafa það notalegt með syninum.... þá datt mér nú ekki í hug að þeir draumar væru skammt undan...

Já þetta er allt að gerast í alvörunni núna, alveg ótrúlegt... ég fékk lyklana í dag og auðvitað byrjaði ég bara um leið að hrúga inn dótinu okkar sem ég er búin að vera á haus við að pakka í allan dag... þetta var svona hálfgert spennufall samt :) Erum búin að fara með alla kassana og næstum allt stóra dótið... það sem er eftir er sófinn, sem við náum í á morgun, rúmið, sem við náum líka í á morgun... og svo eldhúsborðið :) sem ég þarf kanski ekki að taka fram að við náum í á morgun;)

Ég náði samt alveg að gera helling áðan með dyggri aðstoð frá föður mínum og Evu minni :) náðum alveg að gera þetta svoldið kósý en það auðvitað vantar sófann þannig þetta er frekar tómlegt eins og er:$ en það breytist á morgun, ég á örugglega eftir að klára þetta á morgun... er svoddann forkur þegar ég byrja hehe:haha: Stefni á að sofa þarna uppfrá á morgun, og það er bara alls ekki út í hött að það gerist... 8) hlakka svo til, þetta verður æðislegt =)

Svo á morgun ætla ég og mútta í bæinn að versla svona smáhluti, glös og diska og þess háttar... það verður bara gaman, ákveðinn fílingur sem fylgir því;)

En ég ætla að fara að sofa núna, vildi bara aðeins monta mig hihi ;) ég lofa ekki að ég bloggi eitthvað á næstunni því ég verð ekki með netið alveg strax... ætla samt að reyna að redda því sem fyrst... þetta kemur allt í ljós bara, ég er ekkert að stressa mig yfir þessu :P

Hafið það gott elskurnar ;)


» 8 hafa sagt sína skoðun

15.02.2007 00:26:49 / liney

jébb.

Jæja ég hef ekki rassgat að gera, hausinn á mér gæti sprungið núna sökum hugsana, þannig þessi færsla einkennist af bitur og beiskleika... kanski smá súr líka, en einnig koma smá gleðifréttir inní hana líka. 

Ætla nú bara að byrja á einu, fólk með fordóma. HVAÐ ER ÞAÐ? Okei ég hef nú alveg sagt ýmsa hluti sem ég hefði betur látið ósagða um útlendinga og svoleiðis, og kanski vill fólk kalla það fordóma ég veit ekki... en það eru til útlendingar sem er bara mjög fínt fólk, ég er búin að kynnast nokkrum félögum úr ónefndu landi og ég er alveg að fýla þessa stráka... þeir koma mjög vel fram við mig og eru ekkert með neina svona perrastæla, en þá kemur fólk með fordóma og í rauninni fordæmir það MIG líka í leiðinni, hvernig er þetta fólk öðruvísi en við? Ég veit það nú vel að sumir pólverjar láta stundum eins og þeir hafi aldrei séð kvenmann á ævi sinni og það fer nú alveg illilega í taugarnar á mér, en það eru líka íslendingar þarna úti sem láta nákvæmlega eins. Tala nú ekki um á mörkinni, þar eru íslendingar oft ekkert skárri, ekki það að ég sé að fýla þessa pólverja, alls ekki... en ég er ekki með fordóma gagnvart þeim þannig séð... þó þeir eigi nú ekki að láta svona.

En eins og ég segi finnst alveg óþarfi hjá fólki að vera að dæma alla áður en það hefur jafnvel SÉÐ viðkomandi... er alveg komin með ógeð af svoleiðis... viðurkenni það nú líka að ég hef alveg dæmt fólk án þess að þekkja það, það er bara svo óréttlátt ef maður pælir í því, Akranes er og verður alltaf Akranes og flestir ef ekki allir sem búa hér ættu að vera búnir að kynnast því hvernig orðið á götunum hérna flýýgur gjörsamlega... ef maður prumpar á fimmtudegi, þá skeit maður út á torgi á sunnudegi.

Allavega... ég vil ekki að fólk sé að dæma... hmmm ... gæti nú alveg kallað þá vini mína... þó þeir tali ekki íslensku, þeir koma vel fram við allt og alla og eiga ekki skilið svona skít. Og ekki skammast ég mín fyrir að eiga útlenska vini... 

Er nú samt ekkert að gráta í koddann útaf þessu beint... þið megið eiga ykkar skoðun á þessu ef þið viljið... hef ekki beint átt sjö dagana sæla uppá síðkastið, fer nú ekki nánar útí það hér en þetta er samt að bögga mig aðeins. *öxl óskast*

  *andvarp*

 En útí aðra sálma, sem eru aðeins glaðlegri... Líney er að verða stór stelpa... já um mánaðarmótin erum ég og Róbert og voooonandi Eva að fara að flytja, Kirkjubraut 12, nýja stóra blokkin á rúntgötunni, ég hreinlega get ekki BEÐIÐ!!! Kitlar í puttana á að byrja að pakka, ætti nú kanski að fara að huga alvarlega að því þar sem þetta er nú ekki langur mánuður J En ég er ótrúlega ánægð með þessa ákvörðun og þetta verður örugglega alveg meiriháttar, ég nýt dyggs stuðnings foreldra minna og það er alveg ómetanlegt, er svo heppin að eiga svona góða foreldra.

  Já eins og ég nefndi hér fyrir ofan þá hef ég ekki átt sjö dagana sæla beint, ég er ekki að biðja um vorkun, en það er alveg yndislegt að þegar eitthvað bjátar á, að maður geti leitað til einhvers sem manni þykir vænt um, ef ég fer í fúlt skap eða verð leið, þá þarf ekki nema eitt bros frá litla englinum mínum og þá birtir yfir öllu, hann gjörsamlega bjargar manni frá öllu illu þessi elska, svo ég tali nú ekki um hana Evu Björk, gangandi gullkornasmiður, starfar launalaust í þágu vina sinna, þú ert frábær :* Og svo eru nú fullt af fleiri englum sem að koma manni í gott skap á svona dögum, mér þykir svo vænt um ykkur öll :* 

Jesús minn ég væli og væli... æji þetta var bara eina leiðin sem mér datt í hug að tjá mig aðeins... ég verð nú örugglega hressari á morgun J vonum það allavega... það koma bara svona tímar í lífi allra þar sem allt virðist ómögulegt.... en þá er gott að eiga engla eins og ég á sem pikka í mann og benda manni á allt það frábæra sem maður á í lífinu :*

  Jæja þetta er komið gott, takk fyrir að hlusta ef þið nenntuð að lesa þetta allt saman... mér er drullusama hvort þið kommentið eða ekki... :haha:

  Líney bitra is out :*


» 16 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 00:00:00 / liney

***

Ákærður um glæp en hjartað mitt samt æpir hæ gæ,

til þín glöð ég hljóp því hjartað mitt það hrópar hæ gæææ.

Ég er föst eins og frímerki utan á bréfi,

eins og Júlía við Rómeó... enginn efi -

Þó verði hátt mitt fall ég held áfram að kalla hæ gæ!!!


» 9 hafa sagt sína skoðun

20.01.2007 10:28:57 / liney

Bliiiissssarr ;D

Jæja góðir hálsar, haldiði að ég sé ekki komin með mína eigin tölvu, mamma sætust gaf mér bara sína fartölvu og fékk sér nýja! Er nokkuð sátt sko8)

Ætla samt að byrja þessa færslu á að óska Bryndísi og Daða innilega til hamingju með prinsinn þeirra sem fæddist í nótt :* ohhh þetta er svo gaman....

Í gær þá var ég einmitt að pakka niður fötum af Róberti síðan hann var smá polli, og ég bara trúi því ekki að hann hafi einhvertíman verið svona lítill ;) hann er orðinn svo stór núna ohhh bara fallegastur :*

Verð nú að koma einu að, var að horfa á RÚV áðan (aldrei þessu vant) ... og það byrjaði teiknimynd sem heitir eitthvað "imaginary friends" eða eitthvað... og ég er að segja það, þetta var of mikil geðveiki hahaha! ég alveg hló upphátt að þessu, mæli með þessu, þannig endilega rífið ykkur á lappir næsta laugardag og tékkið þetta hehe :haha:

Annars átti amma sæta afmæli í gær og við mæðginin röltum til hennar og fengum okkur gómsætar kökur :) og hann Bóbó frændi átti nú líka stórafmæli í gær, 17 ára - BÍLPRÓF... hamingju með þennan áfanga Bóbó minn, mannst að Líney frænka á alltaf frátekið sæti 8)

Þetta var nú samt ekkert eitthvað ofur merkileg færsla, en vona að þið hafið haft gaman af h0h0h0, ég skrifa bara meira þegar ég man eitthvað....

Blelli, Líney.


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.01.2007 10:19:34 / liney

passið ykkur á bwjáluðu tjýpunni

Það að fá comment frá "NIGTHARANUM" hvatti mig heldur betur til dáða 8) hehe..

Ég overdozaði af grænmeti í gær... grenjaði næstum í hádeginu útaf ég MEIKAÐI EKKI meira!!! þannig ég ætla gefa skít í þetta...

Hvernig stendur á því að ókunnugt fólk talar og talar án þess að hafa nokkra hugmynd um hvað þeir eru að segja? óþægilegt að finna fyrir svona kumpánum, svo ég vitni nú í ágætis lag með Tremeloes... þar segir
"
TALKING IS CHEAP, PEOPLE FOLLOW LIKE SHEEP, EVEN THOUGH THERE IS NOWHERE TO GO "
... svona er þetta bara í dag... fáið ykkur annað hobbí - RÆFLAR!:whut:


En útí allt aðra sálma... ég ætla að hafa það meganæs í kvöld með einu af uppáhalds fólkinu mínu, Róbert og Evu... ætla sko að vera bolla og panta mér pizzu og éta nammi yfir X FACTOR *hand move* ahahaha...

Æææ *stífl*... *stífl* ... jébb stífluð.... riiiitstífluð
hafið það næs gæs

Líney fænadúpa8)

» 5 hafa sagt sína skoðun

09.01.2007 23:33:57 / liney

frábær dagur...

RÓBERT SAGÐI MAMMA!!!!

:D:D:D:D:D:haha::haha::haha::haha::haha:

Ohhh hann er bara OF frábær =o*
orð fá þessu ekki lýst...

» 7 hafa sagt sína skoðun

03.01.2007 00:57:16 / liney

skitill

Jæja nú sest ég niður og blogga í fyrsta sinn á þessu ári... ætli ég verði þá ekki að byrja á því að óska öllum GLEÐILEGS ÁRS :* takk fyrir það gamla allir :*

Áramótin voru geðveik, fór heim til Bjarna bróðir og borðaði þar... alveg dýrindis matur, fær toppeinkun! ... ég horfði nú ekki á skaupið... en er ekkert að gráta í koddann útaf því neitt... :) já svo voru nú þessar sprengjur, voru nú heldur betur skiptar skoðanir á þeim þarna á Esjuvöllunum, en syni mínum hefði ekki getað verið meira sama um þetta... enda hetja með meiru :*
Svo lá leið mín út í "gleðina"... ef svo má að orði komast, allir héllaðir... Fór á Varsjá og þar var nú frekar mikið af liði, og bara mjööög gaman, æðislegt kvöld, æðisleg nótt... byrjaði vel , endaði vel... því jú ef það endar ekki vel, þá er það ekki endirinn!8) 
takk fyrir kvöldið elskurnar.

Vá þegar maður er háður einhverju... þá er ekki hægt að slíta sér frá því... ég er háð klukkunni í eldhúsinu, en hún er búin að vera 17:30 í 3 daga. Ákvað það á gamlársdag að bara hætta að ganga, orðin lúin, þreytt, BÚIN! og það var eldað dýrindis steik útá þessa klukku í gær, jájá mamma setti steikina inn klukkan hálf 6 ;) svo eftir klukkutíma var hún ennþá hálf sex... hahahahaha! vildi bara deila þessu með ykkur;)

Annars verð ég nú bara að nefna það... að ég og Eva mín lentum í helvíti fyndnum hlut áðan... ég ætlaði að kafna úr hlátri... hversu hversu HVERSU vitlaus er hægt að vera... úfff... HAHAHA!!! en fer ekkert nánar útí það hér... varð eigilega að skrifa þetta hér útaf ég veit ekkert hvað ég á að skrifa og er ekki búin að hætta að hugsa um þetta síðan ég kom heim... þannig þið verðið bara að fyrirgefa þið forvitnu ;P

Jæja ætla enda þetta... fannst þetta enda vel þannig ég má enda þetta :) allt er gott sem endar vel vííí

samt ein spurning... ER NAMMI FÍKNIEFNI? ... ágætis pæling:$


bless elskurnar
Líney


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.12.2006 16:36:04 / liney

sagði ykkur það...

Já hvað sagði ég ekki... jólin skullu á áður en ég vissi af... vaknaði einn morguninn og þá var kominn aðfangadagur! og ég var ekki einu sinni búin að skrifa jólakortin!!! aldeilis leti... þannig að jólakortin voru gerð í þvílíkum flýti og ég veit að ég gleymdi einhverjum og ég biðst bara velvirðingar á því :*

Jólin voru ÆÐI... æðislegt að vera með barninu sínu á jólunum og fylgjast með... þó hann hafi nú ekki skilið mikið þá var þetta alveg æðislegt... og hann er svoddan partýljón að hann var ekkert á því að fara að sofa neitt, fullt af gestum og svona :) æjj hann er yndi :*

Akkuru var ekki ball á annan í jólum? það hefur verið ball á þessum degi alveg í 100 ár, svo allt í einu núna bara ekkert... ég meina, veit alveg að það var vinnudagur daginn eftir en síðan hvenar hefur það stoppað fólk hehe ;)

Vil samt endilega minnast á það að ég fékk langþráða MYNDAVÉL í jólagjöf ;) þetta var svooo kærkomin gjöf, nú verður sko myndað ;) þannig að þið getið búist við því að ég fari að setja allskonar myndir hér inná síðuna, djamm-myndir og svoleiðis ;) wooohoooo

lalala... var búin að ákveða að skrifa alveg helling en nú man ég ekkert, þyrfti að skrifa þetta niður hehe :)
ég skrifa bara meira ef ég man... en ef ég skrifa ekkert á næstunni þá vil ég bara segja að ég vona að þið eigið góð áramót ;)

GANGIÐ HÆGT UM GLEÐINNAR DYR

Líney is out.

» 4 hafa sagt sína skoðun

20.12.2006 10:52:00 / liney

Jóla ha ??

Það eru sko engan vegin 4 dagar til jóla!!! það bara passar ekki... ég hlýt að hafa sofið af mér svona 10 daga af þessum mánuði... jólin eru eitthvað svo fjarlæg ennþá... og ég er ekki einu sinni alveg búin að öllu! En svo ég vitni nú aðeins í ---NIGHTARANN --- þá koma jólin hvort sem við erum búin að gera allt eða ekki ;) hehe.. ég samt nenni ekkert að hafa svona leiðilegt veður á jólunum, vil bara rólegan snjó :| þið vitið...

ohhh mig hlakkar samt svooo til aðfangadags... að opna pakkana með einkasyninum og svona :D þetta verður geggjað, og við verðum örugglega lengi að þessu því þetta verður svo sannnarlega pakkaflóð.. pakkarnir eru nú þegar byrjaðir að streyma inn og ég veit ekkert hvar ég á að geyma þá hehe :) hann fékk einn svona fyrirfram pakka í gær sem hann mátti opna strax, og æjjj hann var svo ánægður að mamma hans skyldi í alvöru LEYFA honum að tæta! :D tók myndir af þessu og þær eru æði, set þær inná barnaland við fyrsta tækifæri ;)

annars er Róbert að fara í smá heimsókn til kærustunnar í dag... Alexöndru semsagt.. vá þetta passar saman... Róbert og Alexandra sitja uppí tré... lalalal
Já ABS sætust ætlar að passa fyrir mig aðeins meðan ég fer í vax, það er sko löngu orðið tímabært skal ég ykkur segja... fattaði allt í einu í gær að ég ætti eftir að fara í vax fyrir jólin, og ég bara NEI glætan... hélt ég fengi aldrei tíma, svo hringdi ég og hvað haldiði... "já viltu koma á morgun klukkan 2?" ég bara WTFFF.... :D heppin Líney heppin..

hvað er samt málið með þennan viðbjóðslega barnaperra á msn, ég fékk bara kökk í hálsinn af reiði þegar ég sá þetta!!! DIE FUCKFACE!!! fkn óbjóður...

djöfull er ég samt dugleg að blogga... HA... líka svo gaman þegar þið commentið elskurnar ;) en skil ekki , alveg 50 heimsóknir á dag stundum? hverjir eru það bara? fleehh;)8|
annars er ég orðin tóm núna, getur vel verið að ég skrifi aftur fyrir jól... en maður veit aldrei þar sem jólin verða skollin á án þess að maður taki jafnvel eftir því! jiiiminn...
Hafið það gott elskurnar

kv. Hendrikka

» 6 hafa sagt sína skoðun

17.12.2006 18:38:24 / liney

molar :)

Já ég ætla sko ekki að vera að lofa upp í ermina á mér... þannig ég ætla að blogga smá ;)

Ætla bara byrja á að segja að ég er að fara gera jólakortin og ég man yfirleitt ekki mikið þannig að þeir sem fá ekki jólakort mega ekkert vera fúlir :) elska ykkur alveg jafn mikið og hina ;)

En LOKSINS LOKSINS LOKSINS kom hið langþráða Subway á nesið... ég verð öflug í viðskiptum við þá... byrja nú nokkuð vel, ég og ABS fórum með börnin út að borða þangað á föstudaginn, svo fór ég aftur í gær... og fór aftur áðan :^) hehe þetta er bara of gott... þarf samt að passa mig svo ég fái ekki ógeð, vil ekkert fá ógeð...

EN já ég kíkti út í gær, og ég held gjörsamlega að fólk sé að missa sig... bara í einu og öllu! en ekki nánar útí það hér...
hehe, en það var gaur sem labbaði á Hörpu og ALLUR drykkurinn hennar helltist yfir mig... og ég var ekki sátt, en gaurinn hélt að ég hefði átt glasið þannig hann bauð mér bara í nýtt :haha: þá var ég sátt hehe, maður er alltaf að græða sjáiði til;) en annars var bara ótrúlega gaman og takk fyrir skemmtilegt kvöld allir:)

Svo verð ég nú að segja frá því allra merkilegasta sem gerðist um helgina, Katla mín fékk nafnið sitt... **ALEXANDRA ERLA HLYNSDÓTTIR PEDERSEN** ... æðislegt nafn, fórum í skírn til hennar í morgun við mæðginin, dýrlegar kræsingar, bjóst nú ekkert við öðru, tel mig þekkja hana Stínu hehe ;) æjj hún litla var svo góð í skírnini, svaf svo bara alla veisluna hehe :) en takk æðislega fyrir okkur og til hamingju með dásamlegt nafn!:P

æjj Róbert sæti er komin með tönnslu í neðri góm, svo krúttlegt... ohh hann er svo endalaust sætur og æðislegur... stundum gæti ég alveg étið hann;)

Annars var ég nú að muna eitt sem ég gjörsamlega átti ekki orð yfir... í fréttablaðinu í gær, inní þarna "ALLT" blaðinu... þar var auglýsing fyrir JBS eða JBR eða whattahell... og það eru semsagt karlmannsnærföt... sem er ekki frásögu færandi nema hvað að það var KONA á myndinni sem sat í sófa í skyrtu og með hana sko fráhneppta og hún var í boxer... og svo stóð stórum stöfum fyrir ofan hana "KALLAR VILJA EKKI HORFA Á HÁLFBERA KALLA" .... guð.... ER ÞETTA KARLREMBA EÐA HVAÐ... ég sé nú heldur betur fyrir mér ef að það yrði notað karlkynsmódel fyrir kvenmannsnærföt... ég meina KOMMON!!! vilja konur eitthvað horfa á hálfberar konur? andskotinn ég næ ekki uppí þetta.... hvers á ég að gjalda:evil:

Jæja nú er ég búin að tjá mig nóg í dag... vona að þið hafið gagn og gaman af... kanski ekki gagn.. en gaman :)
sjáumst svo hress í jólaskapi (GVÖÖÖÖÐ jólin eru að koma sko...8|)

kv. Líney superblogger:lol:

» 10 hafa sagt sína skoðun

13.12.2006 11:42:22 / liney

húrra fyrir hetjunni miklu

Já viti menn... ég hef verið að hugsa um að pæla í að byrja að blogga aftur... því ég fór að pæla, það er miklu auðveldara að blogga með styttra millibili, því annars þarf maður að vera að rifja upp hitt og þetta og svo man maður kanski ekkert.. svo er maður búin að skrifa færsluna og þá allt í einu man maður eftir einhverju FLEH!
Ég er búin að sitja við tölvuna núna í dágóðan tíma, búin að heimsækja allar heimasíður sem mér dettur í hug, búin að setja myndir og færslu inná síðuna hjá Róberti, og þar sem hann er sofandi ennþá þá hef ég EKKERT að gera... þannig mér datt í hug að lappa kanski aðeins uppá síðuna mína :) hvernig líst ykkur á það?
Er nú búin að breyta smá útlitinu og setja inn fleiri tengla... svo stefni ég á að setja líka inn myndir, geri það um leið og ég fæ myndavélina mína ;-P annars er nú alltaf böns af myndum inni á síðunni hjá Róberti sætasta :) bara svona minna á það hehe...

Margt hefur gerst síðan ég bloggaði eitthvað af viti síðast... bæði gott og slæmt...

Ég ætla samt ekki að fara að rifja upp einhvað núna 8| ég skal reyna að MUNA að blogga bara fljótlega aftur... vildi bara svona láta ykkur vita af þessari hugdettu minni ;) fyrst fólk er nú svona gaaasalega áhugasamt um mitt líf...


EN þangað til næst...
Líney the blogger to be...


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.11.2006 10:42:27 / liney

jæja elskurnar...

1. miðnafnið þitt:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
7. Dirty or Clean:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Myndir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?
17. Getum við hist og bakað köku?
18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?
22. Finnst þér ég aðlaðandi?
23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
24. Í hverju sefuru?
25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?
28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?

;)


» 18 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Leitarbox